Í dag for fram Meistaramót Íslands í 5 km götuhlaupi samhliða víðavangshlaupi ÍR. Íslandsmeistari kvenna í 5 km götuhlaupi varð Andrea Kolbeinsdóttir (ÍR) á tímanum 17:09. Í öðru sæti var Íris Anna Skúladóttir (FH) á tímanum 17:24. Íris Dóra Snorradóttir (FH) varð þriðja á tímanum 18:31.
Íslandsmeistari karla í 5 km götuhlaupi varð Arnar Pétursson (Breiðablik) á tímanum 15:24. Í öðru sæti var Kristinn Þór Kristinsson (Selfoss) á tímanum 16:03. Jökull Bjarkason (ÍR) varð þriðji á tímanum 16:06.
Heildarúrslit mótsins má finna hér.