Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í úrslitahlaupi Golden Trail World Series

Penni

Fólk í frétt

Deila

Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í úrslitahlaupi Golden Trail World Series

Landsliðskonan Andrea Kolbeinsdóttir vann glæsilegan sigur í úrslitahlaupi Golden Trail World Series (GTWS) sem fram fór í Muju í Suður-Kóreu í gær. Andrea kom fyrst í mark eftir krefjandi hlaup á meðal bestu utanvegahlaupara heims.

Hlaupið reyndi verulega á keppendur en leiðin var 28,6 km löng með 2.313 metra samanlagðri hækkun. Mikil rigning bætti enn á erfiðleikastigið og gerði tæknilega krefjandi leiðina enn varasamari, með blautum klettum, bröttum brekkum og erfiðum niðurhlaupum. 

Andrea sýndi mikinn styrk og útsjónarsemi á leiðinni. Hún vann sig jafnt og þétt upp í fremstu röð og náði forystunni eftir um 17 km. Í kjölfarið hélt hún áfram að auka forskotið og kom fyrst í mark rúmlega fimm mínútum á undan næsta keppanda. Andrea lauk hlaupinu á tímanum 3:19:56.

Sigurinn er stór áfangi á ferli Andreu og staðfestir að hún á fullt erindi í hóp fremstu utanvegahlaupara heims. Leið hennar í úrslitahlaupið hófst fyrr á árinu þegar hún sigraði í Golden Trail í Ástralíu og tryggði sér þannig keppnisrétt í úrslitunum.

Andrea hefur átt frábært keppnistímabil og sýnt styrk sinn í ólíkum hlaupagreinum. Hún setti Íslandsmet í 5 km götuhlaupi í vor og kórónar nú tímabilið með þessum glæsilega sigri.

Frjálsíþróttasamband Íslands óskar Andreu innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!

Penni

•

[rt_reading_time]

min lestur

Fólk í frétt

Deila

Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í úrslitahlaupi Golden Trail World Series

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit