Sigþóra Brynja og Arnar Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi

Penni

Fólk í frétt

Deila

Sigþóra Brynja og Arnar Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi

Víðavangshlaup Íslands fór fram í Kjarnaskógi á Akureyri laugardaginn 17. október. Keppt var í fjölmörgum aldursflokkum, en heildarkeppni karla og kvenna um Íslandsmeistaratitil fór fram í 10 km hlaupi.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA og Arnar Pétursson úr Breiðabliki urðu Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi 2026.

Sigþóra Brynja kom fyrst kvenna í mark á 43:56 mínútum. UFA átti öll þrjú verðlaunasætin en Rannveig Oddsdóttir varð önnur á 45:02 mínútum og Hafdís Sigurðardóttir þriðja á 51:39 mínútum.

Arnar sigraði í karlaflokki á 35:06 mínútum. Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA varð annar á 35:37 mínútum og Halldór Hermann Jónsson úr UFA þriðji á 37:57 mínútum.

Keppt í fjölmörgum aldursflokkum

Auk 10 km heildarkeppninnar var keppt um Íslandsmeistaratitla í einstökum aldursflokkum á mismunandi vegalengdum.

Í 5 km hlaupinu var meðal annars keppt í eldri aldursflokkum. Rannveig Oddsdóttir úr UFA kom fyrst kvenna í mark á 22:45 mínútum, á undan Huldu Elmu Eysteinsdóttur úr UFA og Rakel Ingólfsdóttur úr Ármanni. Rannveig keppti síðar um daginn einnig í 10 km hlaupinu og vann þar til silfurverðlauna.

Björn Margeirsson úr Ármanni kom fyrstur karla í mark í 5 km á 21:35 mínútum. Davíð Jónsson úr UFA varð annar og Stefán Garðarsson úr UFA þriðji.

Í yngri flokkum voru meðal sigurvegara:

  • Piltar 16–17 ára, 5 km: Sindri Karl Sigurjónsson, ÍR – 18:07
  • Stúlkur 15 ára, 5 km: Lilja Sól Ástþórsdóttir – 21:26
  • Piltar 15 ára, 5 km: Vakur Hrafn Plessy, UFA – 24:37
  • Stúlkur 13–14 ára, 3,4 km: Hekla Malín Ellertsdóttir, UFA – 18:03
  • Piltar 13–14 ára, 3,4 km: Ámundi Kuylen Drífuson, Ármann – 10:30
  • Stúlkur 12 ára og yngri, 1,7 km: Jóhanna Björt Baldvinsdóttir, UFA – 7:00
  • Piltar 12 ára og yngri, 1,7 km: Patrekur Halldórsson, UFA – 6:21

Keppt var einnig í fleiri aldursflokkum frá 40 ára aldri og upp úr, auk almenns flokks þar sem þátttaka var opin óháð félagsaðild.

Þorgeir Baldursson ljósmyndari var á svæðinu og tók fjölda mynda frá mótinu. Fleiri myndir má sjá á Akureyri.net.

Penni

•

[rt_reading_time]

min lestur

Fólk í frétt

Deila

Sigþóra Brynja og Arnar Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit