00:00

Skráning á Kids’ Atletics daginn á netskraning.is

Irma þriðja á NM

Penni

< 1

min lestur

Deila

Irma þriðja á NM

Norðurlandameistaramótið innanhúss fór fram í Karlstad í Svíþjóð í dag. Irma Gunnarsdóttir varð í þriðja sæti í langstökki með stökk upp á 6,34 metra sem er aðeins tveimur sentímetrum frá hennar besta árangri. Hafdís Sigurðardóttir varð sjötta með stökk upp á 6,19 metra sem er hennar ársbesti árangur.

Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í fjórða sæti í 60 metra hlaupi karla og kom í mark á tímanum 6,75 sek. en hans besti árangur og Íslandsmetið í greininni er 6,68 sek. sem hann setti í janúar.

Ólympíufarinn og Íslandsmethafi í kringlukasti Guðni Valur Guðnason varð fjórði í kúluvarpi karla og náði sínum besta árangri á árinu með kast upp á 18,15 metra. Sindri Lárusson varð sjöundi með kast upp á 16,48 og var ekki langt frá sínu ársbesta en hann er búinn að kasta 16,52 metra lengst í ár.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir varð í sjötta sæti í 200 metra hlaupi og hljóp á 24.12 sem er hennar ársbesti árangur. Guðbjörg varð svo áttunda í 60m hlaupi á tímanum 7,69 sek.

Vigdís Jónsdóttir opnaði tímabilið sitt í lóðkasti og kastaði lengst 17,99 metra og hafnaði hún í sjötta sæti. Hún á best 18,67 metra.

Elías Óli Hilmarsson varð sjöundi í hástökki karla með stökk upp á 2,00 metra en hans besti árangur í ár er 2,07 metrar sem er einnig hans persónulegi besti árangur.

Ísak Óli Traustason varð sjöundi í 60m grindahlaupi karla á tímanum 8,31 sek. sem er hans ársbesti árangur.

Daníel Ingi Egilsson varð sjöundi í þrístökki karla og stökk lengst 14,78 metra. Hann er búinn að stökkva lengst 15,21 metra í ár sem er hans besti árangur innanhúss.

Penni

< 1

min lestur

Deila

Irma þriðja á NM

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit