Baldvin Þór Magnússon (UFA) bætti Íslandsmet Hlyns Andréssonar (ÍR) í 5000m hlaupi í nótt. Hann kom tíundi í mark í sínum riðli á tímanum 13:32,47 mín. á Bryan Clay Invitational mótinu í Azusa, California. Fyrra metið var 13:41,06 mín sem Hlynur setti í júlí á síðasta ári. Baldvin átti best 13:45,00 frá því á EM U23 ára á síðasta ári þar sem hann vann til brosverðlauna í greininni. Þessi tími Baldvins er fimmti besti tíminn í 5000 metra hlaupi utanhúss í Evrópu í ár.