Um helgina fer fram Meistaramót Íslands 15-22 ára, 19.-20. mars í Laugardalshöll. Það eru um 150 keppendur frá 11 félögum víðs vegar af landinu skráðir til leiks. Það voru ÍR-ingar sem unnu heildarstigakeppnina fyrir ári síðan. Keppni hefst klukkan 9:42 á laugardag og 9:30 á sunnudag.
Tímaseðil og úrslit mótsins má finna hér.