Frjálsíþróttadeild FH býður til Meistaramóts Íslands 15-22 ára sem fer fram 28.-29. janúar í Kaplakrika.
Skráning keppenda fer fram í ÞÓR, mótaforriti FRÍ. Skráningum skal skila inn eigi síðar en á miðnætti þriðjudaginn 24. janúar. Hægt er að skrá keppendur þar til kl. 10 á föstudaginn 27. janúar gegn þreföldu skráningargjaldi samkvæmt reglum FRÍ og sendist sú skráning á siggih@hafnarfjordur.is.
Nánari upplýsingar og boðsbréf má finna hér.
Tímaseðil, keppendalista og skráningarsíðu má finna hér.