00:00

Skráning á Kids’ Atletics daginn á netskraning.is

Með harðfisk og hangikjöt að heiman

Penni

2

min lestur

Deila

Með harðfisk og hangikjöt að heiman

Íþróttafréttamaðurinn og sagnfræðingurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson gaf út bókina Með harðfisk og hangikjöt að heiman, Undirbúning og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Þessi bók fjallar um frjálsíþróttamenn á miðri síðustu öld. FRÍ styrkti útgáfuna og gefur Sögufélag bókina út.

Kynning á bókinni:

“Ólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að standa sig vel. Ísland sendi því stóran flokk á leikana og íslenskar konur þreyttu frumraun sína á Ólympíuleikum.

Undirbúningur Íslendinga gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Íslendingar glímdu við gjaldeyrisskort, í Bretlandi var matur af skornum skammti og ólympíuflokkurinn tók því um 100 kíló af íslenskum mat með í nesti. Að mörgu þurfti að huga, bæði varðandi þjálfun og aðstöðu keppenda, mikill hiti og erfiðar aðstæður í London settu strik í reikninginn og árangur Íslendinganna olli vonbrigðum.

Hér er farið yfir áhugaverðan tíma í íslenskri íþróttasögu í alþjóðlegu samhengi. Margir frægir Íslendingar koma við sögu, eins og til dæmis Gunnar Huseby, kúluvarpari, sem fór ekki á leikana og Jón Leifs, tónskáld, sem keppti í listasamkeppni Ólympíuleikanna. Með harðfisk og hangikjöt að heiman fjallar um undirbúning og þátttöku Íslendinga á þessum sögulegu Ólympíuleikum út frá kenningum um þjóðarstolt og ríkiserindrekstur.”

Hægt er að nálgast bókina í helstu bókabúðum og í netsölu hér.

Penni

2

min lestur

Deila

Með harðfisk og hangikjöt að heiman

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit