HM í utanvegahlaupum 2022

Penni

< 1

min lestur

Deila

HM í utanvegahlaupum 2022

Frjálsíþróttasamband Íslands hyggst senda landslið, karla og kvenna, til keppni á
Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem fer fram 17-20. nóvember 2022 í Chiang
Mai í Tælandi.  Mótið féll niður árið 2021 og ný dagsetning hefur verið staðfest.
Mótið í ár er fyrsta mótið í utanvegahlaupum sem haldið er í samstarfi World Athletics,
ITRA, WMRA og IAU.  Af þeim sökum eru nokkur hlaup í boði en Frjálsíþróttasambandið
hefur áhuga á að senda keppendur í bæði 40km og 80km utanvegahlaupin. Samanlögð
hækkun í 40km hlaupinu er í kringum 2800m og í 80km hlaupinu í kringum 5200m.
Áhugasömum hlaupurum er bent á valreglur FRÍ sem finna má hér.. Hlauparar eru hvattir til
að tilgreina í hvaða vegalengd þeir hyggjast keppa.
Umsóknum skal skila til Langhlaupanefndar FRÍ á netfangið langhlaupanefnd@fri.is fyrir
10.febrúar 2022.  Tilkynnt verður um valið eigi síðar en 15.febrúar 2022.

Penni

< 1

min lestur

Deila

HM í utanvegahlaupum 2022

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit