Hilmar keppti til úrslita á EM í sleggjukasti í kvöld. Keppninni var seinkað vegna þrumuveðurs og þurfti Hilmar þá að bíða í göngunum undir stúkunni í um það bil 20 mínútur áður en honum var hleypt út á völlinn. Hilmar gerði ógilt í fyrsta kasti og kastaði svo 70,03 metra í öðru kasti, gerði svo ógilt í þriðja kastinu. Hilmar hefði þurft að kasta yfir 75,23 metra til þess að komast í átta karla úrslit og fá þá auka þrjú köst.
Frábær árangur hjá Hilmari á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti.