Þau eru ófá tækifærin hjá okkur í frjálsíþróttahreyfingunni. Byrinn er með okkur nú að nýloknu FRÍ þingi, á afmælisári FRÍ, kófinu létt! Ný stjórn FRÍ stefnir hátt og langt og horfa lengra en til næsta viðburðar.
Stjórn FRÍ mun því halda FRÍdaginn, laugardaginn 7. maí kl 9-12. Þar verður rætt í hvaða stöðu við sem hreyfing viljum að íþróttin okkar verði undir lok áratugarins, árið 2030.
Drög að dagskrá:
- Opnun FRÍ dagsins
- Kynningar – stutt innlegg
- Hópavinna
- Samantekt og næstu skref
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að ræða þessi mikilvægu mál og framtíð frjálsíþrótta á Íslandi að skrá sig hér.
Við tökum vel á móti ykkur laugardaginn 7. maí klukkan 9:00 í E-sal ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal!
Framundan er líka Afmælismót FRÍ 28. maí á Selfossi, Ólympíumeistari og fjöldi Ólympíufara keppa! Taktu daginn frá!