Úrvalshópur FRÍ hefur verið uppfærður með árangri frá innanhússtímabilinu. Yfir 20 íþróttamenn bættust við hópinn og var mikið um bætingar hjá þeim sem voru nú þegar í hópnum. Hægt er að sjá hópinn hér. FRÍ verður með æfingarbúðir fyrir úrvalshópinn 25.-26. mars í Laugardalshöll. Skráning í æfingabúðirnar fara fram hér og er hægt að skrá sig ram að miðnætti 21. mars.
Stofnaður hefur verið lokaður facebook hópur þar sem allar upplýsingar varðandi viðburði og annað koma fram. Hópinn má finna hér.
Við óskum öllum þessum íþróttamönnum til hamingju með árangurinn!