Víðavangshlaupadagatalið 2022

Penni

< 1

min lestur

Deila

Víðavangshlaupadagatalið 2022

Nú styttist í víðavangstímabilið og hefst fyrsta hlaupið á laugardag, 1. október. Víðavangshlauparöð Fætur toga og Framfara. Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í október. Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald fyrir hvert hlaup er 500 kr. Hægt verður að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu (með millifærslu) út frá því, skráning fer fram hér.

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 660-0078

Eftirfarandi eru dagsetningar og staðsetningar víðavangshlaupa haustið 2022:

DagsetningarHlaupStaðsetning
1. októberVíðavangshlauparöð Fætur toga og FramfaraFrisbígolfvellinum í fossvogi
8. októberVíðavangshlauparöð Fætur toga og FramfaraVið Borgarspítalann í Reykjavík
15. októberMÍ í VíðavangshlaupumVið tjaldsvæðið í Laugardal
29. októberVíðavangshlauparöð Fætur toga og FramfaraVið ræktunarstöð Reykjavíkur í Fossvogi
6. nóvemberNorðurlandameistaramótiðBergen, Noregur
11. desemberEvrópumeistaramótiðTurin, Ítalía

Penni

< 1

min lestur

Deila

Víðavangshlaupadagatalið 2022

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit