Á morgun fer fram Meistaramot Íslands í víðavangshlaupum við Tjaldsvæðið í Laugardal. Keppt er í fimm mismunandi aldursflokkum frá 1,5 km til 9 km. Skráning keppenda fer fram á netskraning.is og er hægt að skrá sig þar til klukkutíma fyrir fyrstu ræsingu.
Íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdótttir eru á meðal keppenda á morgun og er hægt að sjá keppendalistann hér.
Keppnisflokkar | Vegalengd (u.þ.b.) | Ræst kl. |
---|---|---|
Piltar og stúlkur 12 ára og yngri | 1,5 km | 10:00 |
Piltar og stúlkur 13-14 ára | 1,5 km | 10:15 |
Piltar og stúlkur 15-17 ára | 3 km | 10:30 |
Piltar og stúlkur 18-19 ára | 6 km | 11:00 |
Karlar og konur 20 ára og eldri | 9 km | 11:00 |
Keppt er í bæði einstaklings- og sveitakeppni, þar sem þrír skipa hverja sveit. Fyrstu þrír keppendur í hverjum flokki hljóta verðlaun og fyrsta sveit í hverjum flokki. Verðlaunaafhending verður sem fyrst eftir að keppni líkur í hverjum flokki.
Start og mark er á miðjum tjaldsvæði Reykjavíkurborgar í Laugardal og hlaupið í grasbrekkum og malarstígum þar í kring. Brautin er nokkuð hæðótt.