Kolbienn Höður Gunnarsson (FH) keppir í undanrásum í 60 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu innanhúss á morgun, 4. mars. Kolbeinn er í þriðja riðli og hefjast undanrásirnar klukkan 6:20 , riðill þrjú er klukkan 6:34.
Kolbeinn er búinn að hlaupa 6,68 sek. hraðast í ár sem er jafnframt Íslandsmetið í greininni. Start listann og úrslitin í rauntíma má finna hér.
Hlaupið verður sýnt í beinni á RÚV 2.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hljóp í undanrásum í 60m hlaupi í morgun og varð hún 34. á tímanum 7,56 sek.