Í dag var undirritaður samstarfsamningur Hótel Cabin og Frjálsíþróttasamband Íslands til 31. desember 2025. Samningurinn gildir einnig fyrir Hótel Klett og Hótel Örk undir nafninu Cabin.
Fyrir FRÍ er gaman að geta haldið góðu samstarfi áfram. Hótel Cabin býður upp á alla þá aðstöðu sem nútímaferðalangurinn væntir og þarfnast. Meginstefna Hótel Cabin er að bjóða gestum upp á þægilega gistingu á hagkvæmu verði. Hótelið er vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík aðeins um 600 metra fjarlægð frá Laugardalnum.
Á myndinni eru Geir Gígja, Sölu- og Markaðsstjóri Cabin og Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri FRÍ.