Víðavangshlaup Íslands

17 október, 2026
10:00
Kjarnaskógur, Akureyri
Hlaupahaldari: Fjallahlaup
5 km10 km
MÍ · Víðavangshlaup

Um hlaupið

Víðavangshlaup Íslands er meistaramót Íslands í víðavangshlaupum. Það er öllum opið og hlauparar af öllum getustigum hvattir til að vera með. Við verðum með opin flokk

Bílastæði eru við tjaldsvæðið Akureyri (Hamrar við Kjarnaskóg).

Skráningar og skráningafrestur

Skráning keppenda fer fram á netskraning.is og er hægt að skrá sig þar til klukkutíma fyrir fyrstu ræsingu.

Skráningargjald

Skráningargjald er 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri; frítt fyrir 12 ára og yngri.

Flokkar

KeppnisflokkarVegalengdRæst kl.
Almennur flokkur (#)5 km10:00
Piltar og stúlkur 12 ára og yngri1,7 km10:35
Piltar og stúlkur 13-14 ára3,4 km10:50
Piltar og stúlkur 15-17 ára5 km11:15
Piltar og stúlkur 18-19 ára5 km11:15
Karlar og Konur 20 ára og eldri10 km11:45

Félagsbúningar, keppnisnúmer og afhending keppnisgagna

Keppnisgögn, númer og nælur eru afhent á keppnisstað.
Samkvæmt reglugerð FRÍ þurfa þeir þátttakendur sem keppa á MÍ í víðavangshlaupi að vera skráðir í aðildarfélag FRÍ og keppa í félagsbúning. Þeir sem eru ekki skráðir í aðildarfélag og/eða keppa ekki í félagsbúning keppa sem gestir og geta því ekki unnið til verðlauna.

Í almennum flokki þarf ekki að tilheyra félagi og sérstakur liðsbúningu ekki krafa en viðkomandi telur ekki til sæta á íslandsmeistarmóti 

Verðlaun

Fyrstu þrír í hverjum flokki vinna til verðlauna. Auk þess eru veitt verðlaun fyrir sveitakeppni, þar sem fyrstu þrír í mark í hverjum flokki telja til sveitar.

Mótstjórn

Mótstjóri: Þorbergur Ingi Jónsson
Yfirdómari: Tilnefndur af FRÍ

Frekari upplýsingar

Þorbergur Ingi Jónsson – fjallahlaupathjalfun@gmail.com

Hlaupaleiðin

Hringurinn er 1,67 km að lengd, mestmegnis á grasi en að nokkru leyti á möl. Start og mark er á tjaldsvæði Kjarnaskógar og hlaupið í grasbrekkum og malarstígum þar í kring. Brautin er nokkuð hæðótt.
Kort af hlaupaleið má sjá hér:

Vottunarsaga hlaups

Úrslit í vinnslu, verða birt hér fljótlega.

RunEurope Iceland

Vertu hluti af Run Europe Iceland
Skráðu þig í íslenska Run Europe hlaupasamfélagið og fáðu upplýsingar um hlaup, viðburði og ný tækifæri fyrir hlaupara á Íslandi og í Evrópu.

Run Europe tengir almenna hlaupara beint við FRÍ og European Athletics. Verkefnið opnar meðal annars á nýtt form þátttöku í stórum evrópskum hlaupaviðburðum, eins og Evrópumótinu í götuhlaupum í Belgrad 2027, þar sem almennir hlauparar geta hlaupið samhliða fremstu hlaupurum Evrópu og jafnvel talið inn í árangur Íslands í landskeppninni.

Ókeypis skráning

Önnur erlend mót

Víðavangshlaup Íslands

Skrifstofa

Engjavegur 6, 104 Reykjavík

Netfang

fri@fri.is

Sími

+354 514 4040

Search

Dæmi um leit