Mótið fer fram 15.-16. mars í Nicosia, Kýpur. Þetta er einstaklingsverkefni þar sem íþróttamenn keppa sem fulltrúar Íslands. Keppendur eru einungis valdir til þátttöku á móti hafi þeir náð tilskyldum lágmörkum í fullorðinsflokkum en einnig verður fylgst með að þeir séu í keppnishæfu ástandi.
Val keppenda í U23 ára flokkum verður í höndum unglinganefndar FRÍ ásamt afreksstjóra.