Frjálsíþróttasamband Íslands sendir átta keppendur á Evrópumeistaramótið sem fram fer í Róm dagana 7.-12. júní. Það er fagnaðarefni því þetta er mesti fjöldi í 66 ár eða síðan á EM 1958 en þar voru átta keppendur. Einnig voru tíu keppendur á EM 1950 en Ísland átti 9 keppendur á EM 1946. Það má því segja að ný gullöld sé runnin upp.
Þeir íþróttamenn sem fara út eru:
- Dagbjartur Daði Jónsson I ÍR I Spjótkast
- Daníel Ingi Egilsson I FH I Langstökk
- Elísabet Rut Rúnarsdóttir I ÍR I Sleggjukast
- Erna Sóley Gunnarsdóttir I ÍR I Kúluvarp
- Guðni Valur Guðnason I ÍR I Kringlukast
- Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir I ÍR I Sleggjukast
- Hilmar Örn Jónsson I FH I Sleggjukast
- Sindri Hrafn Guðmundsson I FH I Spjótkast
Þjálfarar
- Guðmundur Pétur Guðmundsson
- Hermann Þór Haraldsson
- Ethan Tussing
- Einar Vilhjálmsson
Farastjórn og Fagteymi
- Guðmundur Karlsson
- Íris Berg Bryde
- Alexander Pétur Kristjánsson
Aðeins 30 keppendur fengu keppnisrétt í þessum greinum og því mikið afrek að komast á þann lista. Þetta er fyrsta stórmót í fullorðinsflokki hjá Daníel, Dagbjarti, Elísabetu og Guðrúnu. Sindri keppti á EM árið 2018 í Berlín en Guðni, Hilmar og Erna eru komin með meiri stórmótareynslu og kepptu öll á EM í München árið 2022 en þar komust Guðni og Hilmar í úrslit.
Dagbjartur Daði Jónsson
Dagbjartur er búinn að eiga gott tímabil. Hans lengsta kast á tímabilinu er 76,52 m. sem hann kastaði á Úrvalsmóti ÍR í byrjun maí. Hann tók þátt á Norðurlandameistaramótinu í Malmö um daginn og kastaði þar 76,05 m. Dagbjartur keppti einnig á tveimur alþjóðlegum mótum í Þýskalandi um síðustu helgi, fyrst í Dessau og svo daginn eftir í Halle þar sem hann kastaði 72,51 m. og 72,91 m.
Dagbjartur er í 26.sæti á stigalista fyrir EM.
Daníel Ingi Egilsson
Daníel hefur byrjað utanhúss tímabilið með glæsibrag. Hans fyrsta mót eftir meiðsli var á Kallithea jumping meeting í Grikklandi þann 15.maí en þar stökk hann 7,65 m. og hafnaði í fjórða sæti. Helgina eftir varð Daníel Norðurlandameistari í langstökki og ekki nóg með það heldur bætti hann 30 ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar um 21 cm er hann stökk 8,21 m. Þetta stökk kom honum beint inn á EM og nú er hann aðeins 6 cm frá Ólympíulágmarki.
Daníel Ingi er í 6.sæti á stigalista fyrir EM.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir
Elísabet er búin að standa sig með glæsibrag í ár. Hún bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti í byrjun tímabilsins er hún kastaði 69,11 m. á UTSA Invitational í San Antonio í Texas. Svo bætti hún metið aftur tveimur vikum seinna þegar hún kastaði 70,33 m. á Bobcat Invitational í Texas. Hún keppir á NCAA 1 Division í Hayward Field in Eugene, Oregon þann 6. júní.
Elísabet er í 28.sæti á stigalista fyrir EM.
Erna Sóley Gunnarsdóttir
Árið hjá Ernu Sóleyju byrjaði vel. Hún keppti á EM innanhússs í Glasgow og hafnaði þar í fjórtánda sæti með kast upp á 17,07 m. Einnig keppti hún á Evrópubikarkastmótinu í Leiria en þar kastaði hún 16,74 m. Hún varð svo önnur á NM utanhúss fyrir tveimur vikum með kasti upp á 17,20 m.
Erna er í 16.sæti á stigalista fyrir EM.
Guðni Valur Guðnason
Guðni er búinn að eiga gott tímabil. Hann varð Norðurlandameistari í kringlukasti fyrr í mánuðinum þegar hann kastaði 60,71 m. Hans lengsta kast á tímabilinu er 63,95 m. sem hann kastaði á OK Throw Series í Oklahoma í Bandaríkjunum. Hann keppti einnig á Evrópubikarkastmótinu í Leiria þar sem hann hafnaði í fimmta sæti og kastaði 60,82 m.
Guðni í 19.sæti á stigalista fyrir EM.
Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir
Guðrún byrjaði árið vel er hún bætti eigið Íslandsmet í lóðkasti í þrígang. Metið hennar í dag er 22,44 m. Guðrún átti einnig Íslandsmetið í sleggjukasti í nokkrar mínútur í byrjun sumars en á Bobcat Invitational í Texas kastaði hún sleggjunni 69,76 m. og bætti þar með Íslandsmet Elísabetar um 65 cm. en Elísabet var ekki lengi að endurheimta Íslandsmet sitt þar sem hún kastaði 70,33 m. í sjöttu umferð. Hún keppir á NCAA 1 Division í Hayward Field in Eugene, Oregon þann 5. júní.
Guðrún í 29.sæti á stigalista fyrir EM.
Hilmar Örn Jónsson
Tímabilið hjá Hilmari byrjaði vel, hann kastaði 75,79 m. á þriðja Nike móti FH sem er hans lengsta kast á tímabilinu. Tók þátt á Evrópubikarkastmótinu í Leiria og kastaði 69,22 m., var fimmti á Kip Keino Classic er hann kastaði 72,19 m. og kastaði 71,50 m. á NM um daginn.
Hilmar í 18.sæti á stigalista fyrir EM.
Sindri Hrafn Guðmundsson
Sindri byrjaði tímabilið sitt vel er hann kastaði 80,30 m. sem er þriðja lengsta kast hans frá upphafi. Stuttu síðar kastaði hann 81,21 m. sem er 30 cm. bæting frá árinu 2018 á USATF Throwers Elite í Arizona sem fram fór í byrjun maí. Einnig varð hann annar á Norðurlandameistaramótinu fyrr í mánuðnum er hann kastaði 78,82 m.
Sindri í 24.sæti á stigalista fyrir EM.